Eva og co..
RSS tengill
Heimsóknir
Í dag:  21  Alls: 232287
12.02.2008 13:05:48 / Eva

Flutt...

... og sennilega löngu komin tími til...

Smellið hérna til að heyra meira um Evu og co.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 12:39:06 / Eva

Krúsídúllur

Ef smellt er á myndina má sjá smá sögu...


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 20:19:14 / Eva

Sææll

Það borgaði sig að fara auðmjúkur og án væntinga inn í helgina, að baki eru TVÆR langar æfingar.  Vaknaði miklu hressari en ég átti von á á laugardagsmorguninn og ákvað að drífa mig með Glennunum að venju.  Hlupum 9 km hring niðrí bæ í fínasta veðri og hittum svo hópinn í Laugum.  Þá skall á stórhríð en við létum það ekki aftra okkur, héldum af stað á ný.  Eftir km tók skynsemin hjá mér völdin, ennþá full af kvefi þá er ekki það sniðugasta að fá ísnálar í andlitið og ofan í hálsmálið.  Hlóp aftur í Laugar og skellti mér á brettið við hlið míns heittelskaða og tók 9 km brekkuprógram á 11.  Rúmar 20 spírur þar.

Fórum á Þorrablót í boði tengdapabba hjá henni Röggu mágkonu, mamma og pabbi komu líka.  Frábær kvöldstund og hlóðum vel fyrir daginn í dag. 

Tengdapabbi kom svo til okkar kl. 9 og við ætluðum bara að sjá til hvernig þetta yrði hjá okkur.  Fórum hring niðrí bæ svipað og á laugardaginn til að hita okkur upp, vorum búin með 10 km þegar við hittum restina af Vinunum eða 10-10 hópnum.  Frábær æfing, inn í Elliðaárdal og upp að brú, áður en við snérum heim á leið.  24 km rúmir lágu í valnum og það besta af öllu, maraþon ráðleggingar frá Mörtu og Gauta á leiðinn, frábært að hafa það í farteskinu. 

Ræddum heilmikið um lengd maraþonprógramma og þau voru sammála (hvort öðru og mér ;) ) að 18 vikna prógramm væri allt of langt, fólk væri orðið svo þreytt eftir allan þennan tíma og búið að missa fókus þegar að hlaupinu væri komið.  Þau mældu bæði með 12 vikna prógrammi, í kjölfarið á æfingum með áherslu á hraða.  Ergo meira er ekki alltaf betra.

Kíktum aðeins á MÍ í Höllinni seinni partinn og keyptum inn málningu fyrir barnaherbergin.  Nú fer alveg að koma að því að við tökum þau í gegn og Lilja fái alvöru herbergi, ekki bara horn inni á skrifstofu.

Viktor félagi minn í vinnunni fær svo hrós vikunnar, gaf Przemeck og Karolínu þennan líka svakalega flotta sófa.  Ég sýndi þeim mynd af honum áður en við sóttum hann og þau trúðu ekki sínum eigin augum 8| 8|.  'How much...?'   Nothing, nothing at all :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 09:20:57 / Eva

Símaraunir

Það er ekkert grín að skipta um símafyrirtæki.  Vorum að flytja allt okkar til Vodafone vegna þess að við fengum fínt tilboð í gegnum vinnuna.  Nú höfum við hvorki verið með heimasíma né net í nokkra daga og engin leið að finna út úr vandamálinu.  Ég var orðin nokkuð leið á svörunum hjá þeim að þetta væri hjá tæknimanni svo ég spurði hvort ég gæti ekki bara hætt við, 'Það tekur þá allt að 7 dögum að skipta aftur til Símans...' .

Er annars búin að vera á frábæru námskeiði í EHÍ í vikunni.  Lærði allt sem mig vantaði að vita um starfið mitt og á eftir að nýta mér 90% af því sem ég lærði.  Langaði helst til að byrja aftur á gömlu verkefnunum mínum og nýta mér það sem ég er búin að læra en það væri sennilega ekki vinsælt hjá yfirmönnunum :haha:.

Hef reynt að skottast út í smá hlaupatúra eftir námskeið og allt annað sem maður þarf að hugsa um með börn og bú.  Tók Ívar á mánudaginn (með leyfi elskunnar :) ), en það er æfing á bretti, 15 í halla og 6 í hraða í hálftíma.  Fínasta æfing en þegar ég var búin að klifra upp brekku í hálftíma þá fannst mér ég þurfa að hlaupa niður aftur svo ég bætti 3 km slaufu aftan við.

Krakkarnir og ég erum að kafna úr kvefi og svo var Þórólfur að hringja í mig rétt í þessu, er orðinn eitthvað slappur og óglatt...  Sé ekki fram á nein afrek um helgina.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 19:57:48 / Eva

Fallegt

Sérstaklega fallegur dagur í dag.  Byrjuðum okkar dag með Vinum Gullu og nú voru fleiri mættir á svæðið en í óveðrinu síðasta sunnudag.  Hlupum 18,3 km, rólega upp Elliðaárdalinn en við sundlaugina í Árbæ var gefið í og ekki slakað á aftur fyrr en við vorum komin langleiðina heim (vel úr augnsýn :lol: ).  Góð tempóæfing fyrir okkur enda vorum við með fyrirtaks héra sem drógu okkur áfram fleiri km á undir 4:30, meðalpace var 5:23.

Gabríel fór í náttfatapartí hjá vinahópnum sínum í dag og á meðan við stelpurnar slökuðum á, bakaði Þórólfur bollur :haha: .  Við fengum svo hjálp við að sporðrenna þeim þegar Dagný og Hjörtur mættu á svæðið, en Hjörtur (læknir) var svo sætur að koma og kíkja í eyrun á henni Lilju okkar til að vera viss um að allt væri á réttri leið.

Smá rúntur í Kringluna til að viðra skvísuna, hún heypur út um allt og brosir til allra sem verða á vegi hennar.  Gaman.

Þegar við komum heim bönkuðu nýju nágrannarnir uppá með fullan disk af nýbökuðu pólsku bakkelsi handa okkur, ekki ósvipað bollum.  Ekki nóg með það en í gær var búið að moka og sópa útitröppurnar þegar við komum heim.   Í dag rölti ég svo rúntinn með Przemeck í garðinn og sýndi honum m.a. þvottahús innganginn en þar er steinveggur sem þarf að fjarlægja og steypa upp á nýtt, snúrustaurana sem þarf að endurnýja og reitinn sem við sjáum fyrir okkur að smíða pall.  Ég sagði honum að við færum kannski í þessar framkvæmdir á næsta ári eða þarnæsta.  'No, I think we do it this year, I'll help you´.  Ég held að þetta verði ánægjuleg sambúð! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 08:46:59 / Eva

Hábeinn hérna megin

Rauðvínslottó í vinnunni í gær.  Það voru 7 flöskur í pottinum og ég lagði til að skipta vinningnum í 6 og 1, en það var fellt.  Allt í lagi þá, ég skal þá bara eiga allar 7....

Sá á innranetinu hjá okkur í vinnunni að það var hægt að skrá sig og vera áhorfandi hjá Loga í beinni á Stöð 2.  Við erum ekki með Stöð 2 og í gamni ákváðum við Þórólfur að kíkja.  Ja hérna hér, við vorum vægast sagt eins og álfar út úr hól.  Á staðnum voru ca. 20 manns, meiriparturinn unglingar með buxurnar á hælunum að drekka bjórinn og gæða sér á pizzunni sem boðið var uppá.  Við settumst út í horn og létum lítið fyrir okkur fara til að meta stöðuna.  Eftir smá stund kemur til okkar ungur (mjög sérstakur) maður og lætur okkur vita að við megum alveg fá okkur líka.  Við afþökkuðum en spyrjum hann út í prógrammið.  Hann segir okkur þá að hann sé sko alvanur að fara á svona viðburði, það sé mjög áríðandi að taka með sér nóg af vatni því það sé steikjandi hiti í salnum, þetta sé í rauninni mjög erfitt.  Hann sjálfur væri á stuttermabol innan undir og fötin setti maður síðan undir stólinn sinn því það væri ekkert fatahengi.  Hann sagði okkur líka að þetta væri sko allt annað en hjá Opruh, þar sem væru 400 áhorfendur sem væru leystir út með gjöfum fyrir að koma.  Hann endaði með því að gefa mér svo eina vatnsflöskuna sína því það var allt búið nema gosið.

Við Þórólfur þökkuðum fyrir, stungum saman nefjum og ákváðum pent að yfirgefa staðinn.  Þetta var ekki alveg það sem við höfðum í huga, kósíkvöld án barnanna...  Skutluðumst niðrí bæ og settumst inn á Kaffi París og hlógum af þessu öllu saman.  Alltaf lærir maður eitthvað nýtt :haha::haha: .


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 13:34:35 / Eva

Hjónahlaup

Útréttingadagur í gær eftir vinnu, náðum meira að segja að kíkja á tvær útsölur í leiðinni með góðum árangri. 

Jens mætti á svæðið eftir kvöldmat með rúm, borð og skrifborðsstól sem við læddum upp í ris.  Mamma og pabbi komu svo til okkar í kaffi í gærkvöldi og voru með tvo hægindastóla sem máttu missa sín.  Við hjónin notuðum tækifærið og skutumst í smá hlaupatúr (nýta pössunina), skokkuðum niðrí Húsasmiðju og náðum í rær og skinnur til að geta skrúfað saman rúmið frá Jens. 

Litla fjölskyldan okkar uppi á ekki orð, skilja ekkert í því að það er fólk út í bæ sem er tilbúið að leggja þeim lið og það er milljón króna virði að sjá hvað þau eru glöð og þakklát.

Langt á morgun, veit ekki alveg hvaðan, hvert eða hversu langt...


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 20:09:41 / Eva

Hjónarúm

Jens búin að redda hjónarúmi, takk fyrir!  Nú vantar helst þvottavél, rúm fyrir Pavel (bróðurinn), sófa og stóla.

Þetta er náttúrulega bara gaman :haha: .

Ps. Tók 5 sinnum 2 km á 4:00 pace eða 15 á brettinu, 90 sek hvíld á milli.  Rúllaði þessu upp!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 12:47:34 / Eva

Sound of music

Ætla að taka eina sub 40 æfingu eftir vinnu, uppáhalds æfinguna mína :lol: .  Nú hef ég ekki tekið spretti síðan á síðasta ári... svo það verður forvitnilegt að sjá hvernig það gengur.

Fréttir vikunnar, Lilja lærði að dansa í gær.  Það var verið að spila eitthvað lag í sjónvarpinu og allt í einu fór okkar kona á fætur, dillaði sér við tónlistina og snéri sér í hringi þangað til hún var orðin alveg ringluð.  Beið svo eftir klappi.  Þetta var mikill tónlistar dagur því hún var ekki fyrr búin með danssýninguna þegar hún settist við sílafóninn sinn og spilaði fyrir okkur, bæði frumsamin lög og svo lék hún undir hjá mömmu sinni sem flutti verkið Gamli Nói.  Eru hæfileikum barnsins engin takmörk sett, ég bara spyr?

Annar styttist í að við fáum Ptsjameck (gisk stafsetnining :) ) og Karolínu til okkar.  Þau eiga sveitabæ í Póllandi og eru komin hingað til að safna sér pening og kynnast landi og þjóð áður en þau halda heim á leið aftur.  Þau eiga náttúrulega engin húsgögn hérna og eru ekki að fara að fjárfesta í neinum ósköpum þannig að ef einhver þarna úti á eitthvað sem hann vill losa sig við úr geymslunni og er til í að láta þau fá eitthvað t.d. í staðinn fyrir að fara með það í Sorpu, þá endilega hafið samband við mig eva@glitnir.is eða 844-4206. 

Við ætlum að lána þeim borðstofuborð, kaffivél og eitt of annað úr geymsluni okkar.  Helen (hlaupakona og x-leigjandi) ætlar að leyfa þeim að hafa ískápinn sinn í bili.  Mamma og pabbi eru búin að finna til tvo hægindastóla. 

Þau heiðurshjón vita ekkert af því að við erum að bauka þetta svo það verður gaman að sjá svipinn á þeim ef þetta tekst vel.  Það sem vantar er t.d.:  4 stólar, rúm, sófi, þvottavél, gardínur, kommóða...   Allt er betra en ekki neitt fyrir einhvern sem á ekkert :haha: .

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 08:58:05 / Eva

Sunnudagur til ...

Vaknaði með æluna í hálsinum á sunnudag og leist ekkert á blikuna.  Reyndi að hrista af mér slenið og við Þórólfur fórum út í óveðrið á fund Vina Gullu.  Þetta var náttúrulega algjört rugl, voru hundblaut og hrakinn þegar við komum niður í sundlaug og hittum þar einn vin, hann Hálfdán sem var líka búin að fá nóg.

Var ómöguleg allan daginn, lystarlaus og slöpp.  Var eiginlega farin að halda að þetta tengdist löngu hlaupunum eða að ég væri orðin of létt eða eitthvað.  Þær áhyggjur voru ásæðulausar, í nótt tók Þórólfur við með magapest dauðans og ég skildi hann eftir í keng heima í morgun :( .

Ætla þá rétt svo að vona að framundan sé sunnudagur til sælu en ekki ...


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 15:49:43 / Eva

Unun

Unun.  Sit hérna og hlusta á hana Öggu vinkonu mína í útvarpinu.  Hljóp 22,2 km með Glennunum í morgun.  Gabríel er úti að leika við vin sinn.  Lilja þvælist um allt hús að uppgötva heiminn.  Tönnin komin í gegn.  Eyrnabólgan farin.  Þórólfur á heimleið frá Köben.  Bananbrauð í ofninum.  Unun.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 10:26:48 / Eva

Útlendingahatur

Ég verð alltaf jafn hissa (ég segi eiginlega sem betur fer) þegar ég verð vitni að grasserandi útlendingahatri.  N.b. ég er mjög hlynnt umræðu um vandamál varðandi innflytjendur og ég tala nú ekki um hvað mér finnst gaman þegar fólk veltir fyrir sér lausnum sem eru raunhæfar og skynsamar.

Að sjá fallegt fólk sem á allt til alls, umbreytast í framan af hroka og fyrirlitningu, taka sér lýsingarorð í munn sem ég myndi ekki viðhafa um dýr og halda fram þvílíku bulli sem staðreyndum.  Það hryggir mig ósegjanlega.  Hvað veldur?  Það hlýtur að vera einhver djúpstæð óhamingja og fáfræði bak við fallegt yfirborðið. 

Ég gæti ekki fundið þessar tilfinningar innra með mér gagnvart nokkrum sköpuðum hlut.  Hvað þá gagnvart venjulegum manneskjum af holdi og blóði, sem eiga tilfinningar, foreldra, systkini, börn...  Ég er svo glöð að vera með fullt af væntumþykju og umburðarlyndi í mínum heimi.  Og af því ég er svo heppin að eiga ótrúlega marga góða að, þá á ég nóg af umburðarlyndi,  líka gagnvart þeim sem eru uppfullir af hatri og fáfræði.

Manneskja sem sér það sem meiriháttar vandamál að fólkið sem er að reyna að þjóna okkur af bestu getu (oft langt frá öllum sem þykir vænt um þá ) skilji ekki eða geti ekki tjáð sig fullkomlega á íslensku.  Ég sannarlega kenni í brjósti um þá manneskju.

Manneskja sem verður glöð að geta með heimatilbúnu táknmáli, leikhæfileikum, þolinmæði eða vinsemd,  gert sig skiljanlegan og skilið aðra.  Ég samgleðst þannig fólki, því ég veit að það gengur um með eitthvað stórt, hlýtt og traust inní sér.  Þannig fólk vil ég helst hafa í kringum mig.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 10:17:41 / Eva

Frisk som en fisk

Hér hrynur fólk niður í hrönnum í kringum mig í magakveisur og vesen.  Var nokkuð viss um að ég hefði pikkað upp þessa ógeðspest í vinnunni, ekki í vafa núna.  Sem betur fer tók þetta bara rúman sólahring og nú er ég spræk sem aldrei fyrr.

Lilja litla hefur ekki alveg verið í besta stuðinu sínu undanfarna daga, voða mikil mömmustelpa og lítil í sér.  Við vorum alveg búin að ákveða að þetta væri tanntakan en þessar rækatlans tennur ætla ekki að komast í gegn hjá grey skinninu.  Í gær fór ég samt að efast um að það væri málið, tók eftir að hún potaði og klóraði sér heilmikið í eyranu.  Við drifum okkur á heilsugæsluna og það kom í ljós að hún er með bullandi eyrnabólgu í hægra eyra og eitthvað að byrja að gerast í vinstra.  Með Flemoxín og nefsprey að vopni vonumst við til að koma skottinu okkar í samt lag.

Við erum líka búin að skrifa undir leigusamning.  Líst alveg ljómandi vel á nýju nágrannana sem koma til okkar um mánaðarmótin, gaman.  Það er nú samt ekkert grín að velja sér leigjendur, það komu 10 - 12 manns að skoða og allir vildu fá íbúðina, Íslendingar og útlendingar í bland.  Sumir alveg desperat, aðrir með börn, allir með von um lausn á sínum málum og það var ekki auðvelt að senda 10 sms með neitun, pjúff, fegin að það er búið.  Við fáum yndisleg pólsk hjón til okkar og bróður mannsins.  Þau ætla að vera hér á landi í ca. tvö ár til að safna sér aur áður en þau halda heim á leið aftur en þau eiga sveitabæ í Póllandi.  Sé okkur skvísurnar í anda í matjurtargarðinum okkar í sumar (mér veitir ekki af smá aðstoð þar... :haha: ). 

Framundan er hádegisskokk með Öggu, með Öggu í þetta sinn ;) .


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 09:26:39 / Eva

Hvaða rugl er þetta?

Ég lifi örugglega heilbrigðasta lífi í heimi (eða mjög nálægt því ) en er samt orðin veik aftur!!!  Þetta er kannski eins og með að hafa allt of hreint í kringum börn, þá fá þau ofnæmi eða asthma, ég veit ekki. 

Alla vega þá byrjaði helgin alveg ljómandi vel á fínni æfingu á Nesinu, 20,3 km þar í safnið í frábærum félagsskap.  Kíktum aðeins í Kringluna seinni partinn og um kvöldið höfðum við það kósí með Gabríel, horfðum á Pirates of the Caribbean.

Um nóttina vaknaði ég svo alveg fárveik, illt í maganum og með hita.  Ég hef alltaf haldið því fram að ég sé með stálvömb og það má telja á fingrum annarrar handar hversu oft ég hef kastað upp en díhhhh sú var ekki raunin í þetta sinn.  Var gjörsamlega búin á því enda ekki með neinn aukaforða þessa dagana og gat varla haldið haus af næringarskorti.  Undir hádegi á sunnudag gat ég súpað soldið te og nartað í ristað brauð og tekið verkjatöflu til að lækka hitann. 

Til að gera þetta allt saman miklu skemmtilegra þá vorum við búin að stefna fólki til okkar að skoða íbúðina í risinu milli 3 og 5 svo ég þurfti takk fyrir að hysja upp um mig og halda haus á meðan.  Já það fór ekki nógu vel með þá sem ætluðu að leigja af okkur í síðustu viku, þegar til kom þá höfðu þau ekki skilið að það þurfti bankatryggingu og svo kom í ljós að þau voru með risastóran (alla vega mjör háværan) páfagauk!  Það var ekki alveg að virka fyrir okkur.  Erum núna með lista að fólki sem vill leigja hjá okkur og þurfum að velja úr, ekki eins einfalt og það hljómar, greinilega margir í heljarinnar vandræðum með að fá húsnæði.

Var ennþá með yfir 38 stiga hita í gærkvöldi svo ég held mig heima en líður miklu betur og hristi þetta vonandi af mér í dag. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 10:28:18 / Eva

Hádegisskokk með Öggu, án Öggu...

Fór í fyrsta sinn út að hlaupa í hádeginu í gær frá vinnunni.  Við Agga ákváðum nefnilega að nota tækifærið fyrst við vinnum saman að hlaupa saman á miðvikudögum.  Agga komst reyndar ekki í gær, var á námskeiði, þannig að ég fór bara fyrsta skokkið okkar saman ein, 8,3 km...

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 51
Dagatal
Leitarbox